Eldri borgarar

Eldri borgarar

Tilgangurinn með þessari síðu er að auðvelda eldri borgurum að nálgast upplýsingar á þessari vefsíðu Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar. Tilfellið er að með aldrinum verða fjölmargir hreyfihamlaðir og gagnast vefíðum þeim þá vel.  Hér tökum við saman hvaða upplýsingar á vefsíðunni gagnist eldri borgurum sérstaklega og er þá tenging héðan beint yfir á viðkomandi efnisflokk og má þar finna efni eins og  upplýsingar um afslætti, félagsstarf, fræðslu, hjálpartæki o.fl. sem tengist málefnum eldri borgara.

Aðgengi

Á vefsíðu okkar má finna ýmsar upplýsingar um aðgengi fyrir hreyfihamlað fólk og til dæmis má nefna aðgengilega gististaði, veitingahús, menningu og bara almennt um aðgengi.

Afslættir

Í blaðinu "Listin að lifa"  sem er gefið út af Landssambands eldri borgara er hægt að lesa sér til um afslætti sem félagsmenn geta fengið frá ýmsum fyrirtækjum víðsvegar um landið. Fremst í bókinni eru einnig upplýsingar um aðildarfélög eldri borgara innan Landssambandsins, þ.e.a.s. hvar félögin eru til staðar, símanúmer, vefpóstur og nöfn formanna.

Félagsstarf

Á vefsíðu Landssambands eldri borgara (LEB) er hægt að sjá lista yfir aðildarfélögin, ásamt nafni formanna, heimilisfangi og símanúmeri.

Sum þessara aðildarfélaga eru með eigin vefsíður og er hægt að finna tengla inn á þær hér fyrir neðan. Þetta eruu ekki öll félögin á landinu, svo við bendum fólki á að athuga hjá viðkomandi sveitarfélagi hvernig ná á sambandi við félag eldri borgara á staðnum. Þá er eitthvað af félögunum með Facebooksíður og þá er bara að setja nöfn félaganna í leitina á Facebook til að finna síðuna þar.

Félag eldri borgara á Álftanesi  -   Facebook síða félagsins 

Félag eldri borgara í Grundarfjarðarbæ

Félag eldri borgara í Hafnarfirði

Félag eldri borgara í Hveragerði

Félag eldri borgara í Kópavogi

Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni 


Félagsstarf í sveitarfélögum landsins
Víðsvegar um landið starfrækja sveitarfélög félagsmiðstöðvar þar sem boðið er upp á félags- og tómstundastarf auk námskeiða með það að markmiði að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun. Á félagsmiðstöðvunum er meðal annars boðið upp á mat og kaffi, tómstundaiðju og hreyfingu. Oft talar fólk um þessar félagsmiðstöðvar sem "félagsstarf eldri borgara" en á flestum stöðum er félagsstarfið opið öllum sem áhuga hafa. Nánari upplýsingar má sjá hér fyrir neðan og hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig, nánar um þjónustu sveitarfélaga

Margar af kirkjum landsins  eru með félagsstarf fyrir eldri borgara, þar sem starfsmenn kirkjunnar sjá um samveruna. Félagsstarfið getur verið mismunandi eftir kirkjum en oft koma gestir og flytja fræðsluerindi eða tónlist, boðið er upp á kaffihlaðborð eða léttar veitingar á sanngjörnu verði, spjall og helgistund. Þeir sem hafa áhuga eru hvattir til að spyrjast fyrir í kirkjum landsins.

Hjálpartæki

Sjúkratryggðir eiga rétt á styrkjum vegna hjálpartækja samkvæmt reglugerð . Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða styrki vegna hjálpartækja sem eru til lengri notkunar en þriggja mánaða.
Upplýsingar um styrk til kaupa á hjálpartækjum.

Allir geta keypt hjálpartæki hjá þeim fyrirtækjum sem selja hjálpartæki, t.d. ef fólk vill eiga salernisupphækkanir í sumarbústaðnum eða heima hjá ættingjum. Hér eru upplýsingar um nokkur fyrirtæki sem eru með hjálpartæki stoð, Hjálpartækjaleiga Sjálfsbjargar.

Hreyfing

Hreyfitorg er er með vefsíðu sem að allir geta haft gagn og gaman af. Þetta er sniðug vefsíða þar sem hægt er að leita að hreyfingu sem að hentar hverjum og einum, eftir staðsetningu á landinu. Auk þess er hægt að lesa ýmsar ráðleggingar og efni sem tengist hreyfingu og kynna sér hreyfiseðil, sem byggir á því að læknir metur einkenni og ástand einstaklings og ávísar síðan hreyfingu sem meðferð eða hluta af meðferð við þeim sjúkdómum eða sjúkdómseinkennum sem verið er að fást við.

Sund er ódýr og fyrirtaks hreyfing. Hér höfum við tekið saman upplýsingar um aðgengilegar sundlaugar

Áhugavert lesefni um hreyfingu aldraðra

Námskeið

Upplýsingar um hin ýmsu námskeið

Réttindi

Öryggismál

Á vef Landsbjargar má finna upplýsingabæklinginn Örugg efri ár! en þar er farið yfir hagnýt atriði sem allir geta nýtt sér varðandi slysavarnir á heimilinu. Gott er að fara yfir gátlista Slysavarnarfélagsins Landsbjargar en þar eru ýmis atriði sem fólk getur nýtt sér þegar það fer yfir öryggisatriði á heimilinu.

Á vefsíðu Miðstöðvar slysavarna barna má finna upplýsingar um slysavarnir fyrir alla aldurshópa. Þar á meðal eru upplýsingar um slysavarnir 65 ára og eldri .

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér