Hér er að finna upplýsingar um lyfjagreiðslukerfi, þjónustu lyfjaverslana og annað sem tengist lyfjum.
Á heimasíðu Lyfjastofnunar kemur fram að hún er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir Velferðarráðuneytið. Helsta hlutverk hennar er að skrá lyf í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), hafa eftirlit með lyfjaiðnaðinum á Íslandi og tryggja faglega og hlutlausa upplýsingagjöf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda.
Árið 2015 var greiðsluþátttökukerfi lyfjakaupa breytt og er markmið þess að auka jafnræði milli einstaklinga óháð sjúkdómum. Lyfjagreiðslu einstaklings er skipt niður á 12 mánuði í senn - og fer kerfið eftir því hvenær einstaklingur kaupir fyrstu lyfin. Dæmi, ef einstaklingur kaupir lyf 10. maí 2019 þá er tímabil hans til 9. maí 2020. Sjá greiðsluþáttökukerfið á vefsíðu SÍ.
Þau lyf sem Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) taka þátt í að greiða eru sett inn í þrep og þegar lyfjakostnaður hefur náð ákveðnu hámarki, innan 12 mánaða tímabilsins, getur læknir sótt um að SÍ greiði lyfin að fullu það sem eftir er af tímabilinu.
Aldraðir 67 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar og börn og ungmenni yngri en 22 ára greiða lægri upphæðir en aðrir. Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu greiða sem eitt.
Á fyrsta þrepi greiðir einstaklingurinn lyfin að fullu, á öðru þrepi greiðir einstaklingurinn 15% af heildarkostnaði lyfjanna en SÍ 85% og á þriðja þrepi greiðir einstaklingur 7,5% af heildarkostnaði lyfjanna en SÍ greiða 92,5%. Það kemur til fjórða þrepsins ef heildarkostnaður lyfja fer yfir ákveðna upphæð (hjá öryrkjum, öldruðum og börnum og ungmennum yngri en 22 ára er það ef heildarkostnaður er kominn yfir 325.333 kr). Nánari upplýsingar um greiðsluþref lyfjakaupa á vef SÍ.
Ef einstaklingur notar að staðaldri lyf sem er ekki á skrá Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) ætti sá hinn sami að láta lækni sækja um lyfjaskírteini til SÍ. Sé einstaklingur að nota sérlyf, sem hentar honum betur en lyf sem SÍ er með á skrá, ætti hann einnig að óska eftir lyfjaskírteini.
Þeir sem vilja kynna sér betur lyfjagreiðslukerfið er bent á vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á lyfjadeild(hjá)sjukra.is.
Lyfjagreiðslunefnd ákveður hámarksverð á lyfseðilsskyldum lyfjum og hvort sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu lyfja. Lyfjagreiðslunefnd gefur út lyfjaverðskrá mánaðarlega, sjá nánar hér á vefsíðu SÍ.
Lyfjaverslanir landsins veita margvíslegar upplýsingar og þjónustu varðandi lyfjamál. Margar lyfjaverslanir veita afslætti sem vert er spyrjast fyrir um.
Hér eru tenglar á lyfjaverslanir sem bjóða lyfjaskömmtun og heimsendingarþjónustu á lyfjum. Athugið að mun fleiri lyfjaverslanir en þær sem hafa vefsíðu bjóða þessa þjónustu og sjálfsagt að spyrjast fyrir í lyfjaversluninni í þinni heimabyggð.
Lyfjaskömmtunarþjónusta Apótekarans
Lyfjaskömmtunarþjónusta Lyf og heilsu Heimsendingarþjónusta Lyf og heilsu
Lyfjaskömmtunarþjónusta Lyfjavers
Lyfjaskömmtunarþjónusta Lyfju Heimsendingarþjónusta Lyfju
Lyfjaskömmtunarþjónusta og heimsendingarþjónusta Urðarapóteks
Ýmis hjálpartæki eru til fyrir lyfjainntöku og ættu að fást í flestum lyfjaverslunum, dæmi:
Á Landspítalanum er eitrunarmiðstöð sem gefur upplýsingar um eiturefni og ráðgjöf um viðbrögð og meðferð þegar eitranir verða. Símanúmer eitrunarmiðstöðvarinnar er 543 2222 (eða 112 í gegnum neyðarlínuna) og er svarað í síma allan sólarhringinn. Þegar hringt er í eitrunarmiðstöðina er gott að hafa upplýsingar um:
Á vef Landspítalans er að finna ýmsar upplýsingar um hvernig hægt er að koma í veg fyrir eitranir og upplýsingar um þjónustu eitrunarmiðstöðvarinnar.
Í gengum vefsíðu Lyfjastofnunar er hægt að fá upplýsingar um lyf og sérlyfjaskrá.
Lyfjabókin inniheldur upplýsingar um öll skráð lyf á Íslandi sem eru seld í apótekum. Hægt er að leita eftir lyfjaheiti, útliti eða innihaldsefni.
Heilbrigðisvísindabókasafn LSH er fagbókasafn á heilbrigðissviði. Safnið er öllum opið en hefur það hlutverk að þjóna fyrst og fremst heilbrigðisstarfsfólki innan Landspítala, kennurum og stúdentum í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands og öðrum sem gert hafa þjónustusamning við safnið.
Á vefsíðu Heilbrigðisvísindabókasafnsins má finna tengla inn á vefsíður þar sem hægt er að finna ýmsar upplýsingar um lyf.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér