Túlkaþjónusta

Rittúlkar

Hraðar hendur 

Til að panta rittúlk er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eða hringja í s. 863 4490. 

Táknmálstúlkar

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra - túlkaþjónusta

Grensásvegi 9 | 108 Reykjavík | 562 7702 | [email protected] | Vefsíða Samskiptamiðstöðvarinnar

Miðstöðin býður upp á túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta.
Túlkaþjónustan er opin á milli kl. 8-16 virka daga. 

Túlkaþjónusta fyrir fólk af erlendum uppruna

Alþjóðasetur

Álfabakka 14 | 109 Reykjavík | 530 9300 | [email protected] | Vefsíða Alþjóðaseturs

Alþjóðasetur býður túlkun á fleiri en 50 tungumál. Túlkar starfa bæði í gegnum síma og mæta á staðinn. 
Hægt er að panta túlk með því að senda tölvupóst, hringja eða í gegnum vefsíðu.
Utan afgreiðslutíma er hægt að hringja í neyðarsímann 651-9300. 

InterCultural Iceland

Fiskislóð 81 | 101 Reykjavík | 517 9345 | [email protected] | Vefsíða InterCultural

InterCultural Iceland býður túlkaþjónustu á 63 tungumálum og hefur 153 túlka á skrá.
Hægt er að panta túlk með því að hringja eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]

Jafnréttishús

Strandgötu 25 | 220 Hafnarfirði | 534 0107 - 534 0108 | [email protected] | Vefsíða Jafnréttishúss

Jafnréttishús býður túlkaþjónustu og leggur áherslu á málefni innflytjendakvenna.
Hægt er að panta túlk með því að hringja eða með því að senda tölvupóst á milli kl. 9 til 16.
Á kvöldin og um helgar er hægt að hringja í síma 899 2301.


Fjölmenningarsetur

Árnagötu 2-4 |400 Ísafjörður | 450 3090 | [email protected]

Fjölmenningasetur er stofnun á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Fjölmenningasetur veitir ráðgjöf og upplýsingar um allt sem innflytjendur og flóttafólk þurfa að vita. Geta veitt ráðgjöf um túlkaþjónustu.

Ráðgjöf fyrir innflytjendur á vegum Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur býður upp á ráðgjöf alla virka daga fyrir innflytjendur. Það er ráðgjöf á pólsku, ensku og íslensku og kallað er til túlka ef þörf krefur. Ráðgjafar hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband með netpósti á:  [email protected]

Túlkaþjónusta fyrir sjúklinga

Í lögum um réttindi sjúklinga (sjá 5. gr.) frá árinu 1997 kemur fram að sjúklingur sem er sjúkratryggður á Íslandi  en talar ekki íslensku eða notar táknmál á rétt á þjónustu túlks. Heilbrigðisstarfsfólki ber að sjá til þess að sjúklingurinn fái þessa þjónustu.


Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér