Þakkir til félaga

Tveir félagar voru kvaddir á landsfundi landssambandsins

Herdís Ingvadóttir fráfarandi formaður Sjálfsbjargar á Akureyri og Ívar Herbertsson stjórnarmeðlimur Akureyrarfélagsins sátu sinn síðasta landsfund um helgina. Herdís hefur að baki 30 ár sem félagi í Sjálfsbjörg og gengdi stöðu formanns Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni í 26 ár, hún lét af því embætti í vor. Ívar á viðlíka tíma að baki sem félagi og stjórnarmaður hjá Sjálfsbjörg á Akureyri. Var þeim þakkað þeirra mikla framlag og vel unnu störf. Í tilefni af þessu var Herdísi var veitt til eignar stytta af sjálfsbjargarmanninum sem Þorgils Óttar Erlingsson, búsettur á Ísafirði, gerði og Brandur Bryndísar Karlsson gaf landssambandinu.