Reykjanesbær gerir átak í átt að bættu aðgengi fyrir alla

Fyrirhugað er að afrakstur undirbúningsvinnu vegna aðgengismála fatlaðra í Reykjanesbæ verði kynntur fyrir skólabyrjun næsta haust.

Vinnan hefur miðað að því að meta allar stofnanir bæjarins út frá sjö mælikvörðum aðgengis og gera á þeim endurbætur þar sem þörf er á. Jafnframt að öllum notendum sé gerð grein fyrir stöðu aðgengis með skýrum hætti.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að markmiðið sé að gera hversdagslífið þægilegra fyrir einstaklinga með skerta færni.

„Bætt aðgengi fatlaðra er hluti af verkefnum í framtíðarsýn okkar. Sú sýn er að færast í nútímann með þessu. Við verðum sjálf að ganga á undan með góðu fordæmi, ef við ætlumst til þess að einkafyrirtæki taki sig á. Þar vantar enn nokkuð uppá en ég finn mikinn áhuga á að gera betur.“ segir Árni.

Aðgengismerkjakerfið er staðlað kerfi sem veitir upplýsingar um aðgengi að byggingum og útisvæðum ætluðum almenningi. Úttekt verkefnisins er unnin af fyrirtækinu Aðgengi ehf.

Heimild: mbl.is