Ársverkefni Sjálfsbjargar 2018

Ársverkefni Sjálfsbjargar

Á Landsfundi Sjálfsbjargar 2016 var samþykkt að fara af stað með sérstök ársverkefni samtakanna og færi það fyrsta fram 2017. Hverju sinni væri tekið fyrir afmarkað verkefni er tengdist aðgengismálum hreyfihamlaðra. Markmið verkefnanna er að vekja athygli á aðgengismálum okkar fólks. Jafnframt fengju aðildarfélögin sameiginlegt verkefni til að vinna að og gæti þar með virkjað sitt fólk til að vinna að verkefninu. Skrifstofan mun undirbúa verkefnin og halda utan um þau. Samþykkt var að fyrsta ársverkefni sem kom til framkvæmda 2017 væri tileinkað aðgengi að sundlaugum. Í ár er komið að söfnum undir heitinu Söfn okkar ALLRA!

Ársverkefnið 2018 – Söfn okkar ALLRA!

Undirbúningur verkefnisins hófst á vordögum. Útbúið var sérstakt vinnuhefti bæði í word (opnast í sérstökum flipa) og pdf formi (opnast í sérstökum flipa).

Heftið var prentað og kynnt og dreift til aðildarfélaga á Landsfundinum 2018. Í vinnuheftinu er framkvæmd verkefnisins lýst og síðan er gátlisti sem úttektaraðilar hafa með sér við úttektina og fylla út. Úttektin er hugsuð sem notendaúttekt og var lagt upp með að aðildarfélögin ákveði sjálf hversu mörg söfn þau taka út. Reiknað er með að þrír einstaklingar (Sjálfsbjargarfélagar) myndi úttektarteymi og fylgi gátlistanum eftir við úttektina. Niðurstöður eru svo sendar skrifstofu samtakanna sem vinna sameiginlegt yfirlit yfir söfnin sem eru tekin eru út og kynni á haustmánuðum.