Ákvörðun kom á óvart

Í sameiginlegri yfirlýsingu félags- og tryggingamálaráðuneytis, sveitarfélagsins Árborgar og þingmanna Suðurkjördæmis segir að þjónusta við íbúa á Sólheimum verði áfram tryggð. Í yfirlýsingunni segir að  samkomulag um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna tryggi óbreytt rekstrarfé til Sólheima líkt og annarra sjálfseignarstofnana á næsta ári. „Íbúum verður tryggð þar áframhaldandi þjónusta þótt forsvarsmenn Sólheima dragi sig út úr rekstrinum,“ segir í yfirlýsingunni.

Í yfirlýsingunni segir ennfremur að jafnframt vekur það undrun að forsvarsmenn Sólheima kjósi að draga sig út úr rekstrinum og vísa til þess að fjárveitingar næsta árs muni ekki duga í ljósi þess að framlögin verða í fullu samræmi við framlög síðasta árs. Fari svo að stjórn Sólheima nýti sér heimild fulltrúaráðsins og segi upp samningum mun félags- og tryggingamálaráðuneytið í samvinnu við Árborg og þjónustusvæði fatlaðra á Suðurlandi tryggja að íbúar Sólheima eigi þar áfram búsetu og njóti þjónustu líkt og verið hefur.