Öryrkjabandalagið mótmælir skerðingu bóta

Ályktun Öryrkjabandalags Íslands

Fundur aðalstjórnar Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 23. nóvember 2011, mótmælir harðlega þeim alvarlegu skerðingum á kjörum öryrkja sem fyrirhugaðar eru af hálfu Ríkisstjórnar Íslands og birtast m.a. í frumvarpsdrögum Velferðarráðuneytisins. Öryrkjabandalagið krefst þess að ríkisstjórnin hverfi þegar í stað frá áformum sínum um enn frekari árásir á lífskjör öryrkja fjórða árið í röð.

Örykjabandalagið hvetur öryrkja og aðra landsmenn til að fylgjast grannt með framvindu mála næstu daga og vikur.

Reykjavík, 23. nóvember 2011.