Daglegt líf

Daglegt líf

Hér söfnum við saman ýmsum hagnýtum upplýsingum sem varða daglegt líf hreyfihamlaðra (fatlaðra) bæði innan veggja heimilisins og utan. 

Eldhús

  • Smáhjálpartæki sem nýtast í eldhúsinu fást t.d. hjá Eirberg, Fastus  og Stoð.
  • Klaran.is er vefverslun sem sérhæfir sig í vörum sem einfalda vinnuna í eldhúsinu. Hentar einnig fólki sem eingöngu notar aðra hendina, án þess að vera sérstaklega hannaðar fyrir fatlaða.

Fatnaður fyrir hreyfihamlað fólk - hjólastólanotendur

Ekki er vitað um saumastofur hérlendis sem hafa sérhæft í að sauma eða breyta fatnaði fyrir fatlað fólk og eru allar upplýsingar þar um vel þegnar.

Aftur eru slíkar saumastofur víða erlendis og finna má þær á internetinu. Hér eru nokkrar tilteknar sem  selja föt sérsniðinn að ólíkum þörfum fólks með mismunandi fatlanir. Því miður vitum við ekki til þess að söluaðilar á Íslandi selji slíkan fatnað en margar saumastofur bjóða upp á að breyta fatnaði og sauma sérsniðin föt frá grunni.

Dórukot hefur tekið að sér sérsaum á hlífðarfatnaði og hefur m.a. gert svuntur fyrir hjólastóla.

Gleym mér ei, er fóðraður hlífðarpoki sem hentar vel til útivistar, fyrir fólk á ýmsum aldri. Kemur sér vel til að klæða kuldann af sér fyrir fólk á rafskutlu eða hjólastól. Hlífðarpokarnir fást í 3 stærðum en einnig er saumað eftir máli. Nánari upplýsingar veitir Alda saumakona í síma 849 0446 eða netfangið [email protected]

Hér að neðan eru nokkrar erlendar netverslanir sem selja sérhæfðan fatnað.

Able2Wear

AdaptaWear

alterurego.co

Clothing solutions for disabled people

cur8able.com

rollimoden.de

Garðurinn

Hér eru hugmyndir að útfærslu á garðinum þannig að hann henti hreyfihömluðu fólki. Ábendingar um fleiri atriði sem hjálpa fötluðu fólki við að hugsa um garðinn sinn eru vel þegnar.

  • Á vefsíðunni Grows on you eru myndir af görðum sem geta gefið fötluðu fólk hugmyndir þegar kemur að garðrækt.

Innkaupakerrur fyrir hjólastóla

Nokkrar verslanir bjóða upp á innkaupakerrur sem hægt er að festa við hjólastóla. Þær verslanir sem við höfum fengið upplýsingar frá (desember 2015) eru:

Fjarðarkaup, Hafnarfirði

Hagkaup, allar verslanir. Það þarf að óska eftir þeim við starfsfólk sem sækir þær fyrir þig.

Ikea

Iceland, Engihjalla

Krónan (Akranesi, Bíldshöfða, Granda, Lindum, Mosfellsbæ, Selfossi)

Nettó, Mjódd

Útivist

  • Hægt er að fá hanska fyrir hjólastólanotendur á nokkrum stöðum. Fossberg hefur selt ýmsar gerðir af hönskum (en aðgengi þar er ekki gott skv. upplýsingum frá hjólastólanotanda). Einnig eru seldir sterkir hanskar í Verkfæralagernum sem er í Smáranum í Kópavogi (gott aðgengi skv. hjólastólanotanda). Þá má versla hanska erlendis frá í gegnum netverslanir t.d. MobilitySmart .

Til eru sérstakir útivistarhjólastólar, svokallaðir Hippocampe, á nokkrum stöðum á landinu sem hægt er að fá lánaða án endurgjalds. Útvistarhjólastóll auðveldar einstaklingum sem eiga erfitt með gang eða nota hjólastóla að fara um mólendi, strendur og í snjó, en hægt er að setja skíði undir stólinn til að fara um í snjó. Á höfuðborgarsvæðinu hafa þessir stólar til útláns hjá Grensás, Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Þá vitum við til þess að slíkir stólar hafi verið til hjá Sjálfsbjörg á Akureyri og að einn stóll sé staðsettur á Akranesi á sambýli þar og munu útivistarhjólastólar vera til á Húsavík, Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar fást hjá Íþróttasambandi fatlaðra.

  • Hjá Excellentwheelchair er hægt að fá klifurstól. Klifurstóll klífur tröppur og stiga þannig að aðstoðarmaður þess sem á erfitt með gang eða þess sem notar hjólastól þarf ekki að reyna mikið á sig við að aðstoða einstaklinginn upp stigann.
  • Rafgeymasalan í Hafnarfirði selur rafgeyma í rafskutlur. Það sem þarf að athuga eru Amper stundir á rafgeymi, hve mörg voltin eru og ummálið á geymnum (hæð, breidd og lengd).
  • Rafmagnshlaupahjól sem og rafknúin reiðhjól eruað verða æ algengari og mörg þeirra henta hreyfihömluðu fólki ágætlega. Þar sem þróunin er svo hröð og sífellt eru að koma inn nýjir söluaðilar er best að nota leitarvélar og nota t.d. orðið "rafhlaupahjól" þá koma upp söluaðilar og lýsingar á hjólunum.
  • Leiðbeiningar og góð ráð um notkun vél- eða rafknúinna hjóla sem eru hönnuð fyrir allt að 25 km hraða má finna á vef Samgöngustofu.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér