Sjálfsbjörg býður félögum sínum upp á frí stuðningsviðtöl hjá Samskiptastöðinni. Hægt er að fá viðtal vegna sálfræðimeðferðar, félagsráðgjafar, fjölskyldumeðferðar, fræðslu og sáttarmiðlunar.
Hægt er að óska eftir tíma með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 419-0500.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected] með beiðni um tíma eða frekari spurningar.
Viðtölin standa félagsmönnum Sjálfsbjargar til boða. Til að gerast félagsmaður er hægt að hafa samband við eitt af aðildarfélögum Sjálfsbjargar sem eru staðsett víða á Íslandi. Upplýsingar um aðildarfélögin er að finn hér
Viðtölin fara fram á Samskiptastöðinni
Alda hefur reynslu af því að veita meðferð við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu, lágu sjálfsmati, áfengisvanda og sálrænni vanlíðan í kjölfar líkamlegra veikinda. Auk þess hefur Alda reynslu af sálrænum stuðningi við aðstandendur einstaklinga með heilabilun.
Alda Dís útskrifaðist með BA í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2021 og MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2024, hún fékk starfsleyfi sálfræðings sama ár. Alda leggur áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM) í sinni meðferð sem sálfræðingur. Í námi sínu öðlaðist hún fjölbreytta reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga og sótti starfsnám hjá Reykjavíkurborg, Reykjalundi og Áfallateymi Landspítala. Hún fékk handleiðslu í kennslu námskeiðsins ,,Foreldramiðað HAM” hjá Austurmiðstöð Reykjavíkurborgar sem er námskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 5-12 ára sem sýna einkenni kvíða. Í meistararannsókn sinni rannsakaði Alda upplifun þolenda kynferðisofbeldis af því að opna sig um ofbeldið á samfélagsmiðlum. Þá skoðaði hún m.a. hvað leiddi til ákvörðunarinnar að segja frá með þeim hætti og hvaða afleiðingar sú ákvörðun hafði fyrir þolendur.
Samhliða starfi á Samskiptastöðinni starfar Alda í sálfræðiþjónustu vefrænna deilda Landspítala á Landakoti þar sem hún veitir m.a.
einstaklingum með heilabilunarsjúkdóma og aðstandendum þeirra sálfræðiaðstoð.
Alda hefur auk þess mikinn áhuga á heilsu og velferð barna og er jafnframt kórstjóri Barnakóra Guðríðarkirkju.