Þjónusta sveitarfélaga

Ásahreppur

Ásahreppur

Laugalandi | 851 Hellu | 487 6501 | asahreppur(hjá)asahreppur.is | Vefsíða Ásahrepps

Félagsþjónusta Rangárvalla /-og Vestur-Skaftafellssýslu sinnir íbúum Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Höfuðstöðvar félagsþjónustunnar eru að Hellu (Suðurlandsbraut 103, 850 Hellu - sími 48708125). Starfsmennirnir hafa einnig aðstöðu á skrifstofum sveitarfélaganna til að íbúar geti nýtt sér þjónustuna nærri heimabyggð. Starfsmenn félagsþjónustunnar fara jafnframt á heimili fólks ef það hefur ekki tök á að fara á skrifstofu sveitarfélagsins.

Á vefsíðu Ásahrepps er þjónustugátt, Íbúagátt , þar sem íbúar geta verið í samskiptum við sveitarfélagið og sótt ýmsar upplýsingar, svo mikilvægt er að íbúar skrái sig þar inn ef verið er að leita upplýsinga.

Nánari upplýsingar um þjónustu félagsþjónustu við fatlað fólk.

Kannaðu hvort þú átt rétt á lækkun fasteignagjalda.

NPA miðstöðin veitir upplýsingar um notendastýrða persónulega aðstoð.

Kannaðu hvort þú átt rétt á styrk til náms, verkfæra- eða hjálpartækjakaupa (sjá lög og reglur þar um). 


Ef þú finnur ekki þær upplýsingar er þú leitar að hér að ofan eða á þeim vefsíðum sem vísað er til, þá hvetjum við þig til að hafa samband við Þekkingarmiðstöðina.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér