Afslættir fyrir öryrkja

Á heimasíðu ÖBÍ - réttindasamtaka er að finna upplýsingar um afslætti og sérkjör fyrir öryrkja.

Frítt fyrir aðstoðarmenn

Hjá sumum fyrirtækjum er boðið upp á frían aðgang fyrir aðstoðarfólk hreyfihamlaðra, eða einungis er greitt fyrir annan aðilann. Fyrirtæki sem bjóða upp á það eru:

Sky Lagoon - nauðsynlegt er að hafa samband og biðja starfsmann um að bæta aðstoðarmanni við bókunina til þess að ekki þurfi að greiða fyrir aðstoðarmann.

Jarðböðin við Mývatn hafa verið að bjóða aðstoðarmönnum frítt ef þeir koma með hreyfihömluðum gesti.

Sundkort fyrir einstaklinga á örorku- og endurhæfingalífeyri

Einstaklingar sem þiggja örorkubætur geta fengið frítt í sund einu sinni á dag hjá Reykjavíkurborg gegn framvísun örokuskírteinis eða staðfestingu á endurhæfingalífeyri. Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu hefur samstarfi við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar vegna sundkorta.

Skíðasvæðin bjóða einnig upp á frí kort fyrir þá sem framvísa örorkuskírteini og hægt er að sækja um það á vefnum.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér