Vel heppnað Aðgengisstroll

Í gær fór fram Aðgengisstroll, vitundarvakning um aðgengismál. Fyrir vitundarvakningunni stóðu sex félög: CP, GIGT, MND, MS, SEM og SJÁLFSBJÖRG.

Tilgangurinn með strollinu var að vekja fólk til vitundar um mikilvægi aðgengis fyrir þann stóra hóp einstaklinga, barna og fullorðinna, sem nýtir hjólastóla eða önnur hjálpartæki til að komast um í samfélaginu. Aðgengismál hafa batnað til muna á þeim 65 árum sem liðin eru frá stofnun Sjálfsbjargar, og má þakka það öflugu baráttufólki margra félaga fyrir bættu aðgengi. Það var því ástæða til að fagna því sem vel hefur verið gert og hvetja til áframhaldandi baráttu.

Félagsfólk hittist við Mannréttindahúsið í Sigtúni, vopnaði sig skiltum með hvatningarorðum á um aðgengi að ýmsum sviðum samfélagsins, blöðrum og fánum og strollaði svo af stað.

Leið lá upp á Suðurlandsbrautina að mótum Kringlumýrarbrautar og strollaði hópurinn, sem taldi yfir 40 manns, í nokkra hringi yfir þessi stóru gatnamót. Óhætt er að segja að uppátækið hafi vakið athygli og viðbrögð akandi og gangandi vegfarenda jákvæð en margir flautuðu í hvatningarskyni á hópinn. Að viðburði loknum hittist hópurinn í Mannréttindahúsinu, borðaði saman og naut félagsskaparins. Ákveðið var að endurtaka leikinn í haustbyrjun. Búið er að stofna hóp á Facebook sem ber nafnið Strollararnir, áhugasöm eru hvött til að óska inngöngu í hópinn til að fylgjast með og taka þátt í næsta viðburði.

Fleiri fréttir