Aðgengi er lykill að sjálfstæði, þátttöku og virkni

Aðgengi og hjálpartæki eru jöfnunartæki, sem stuðla að því að t.d. hreyfihamlað fólk hafi tækifæri til jafns við aðra til að stunda útivist og íþróttir, skóla, vinnu eða einfaldlega sjá um barnið sitt og taka þátt í þess lífi á sömu forsendum og ófatlaðir foreldrar.

Ég hef kynnst fólki sem er umhugað um gott aðgengi, það fólk hefur áttað sig á því að öll geta orðið hreyfihömluð á lífsleiðinni, um skemmri tíma eða varanlega og þá skiptir aðgengi öllu máli. Ég hef líka kynnst því að fólki finnist krafa um aðgengi ekki eiga rétt á sér ,,það sé aldrei hægt að gera alla staði aðgengilega‘‘. Slík hugsun er þröngsýn og til að breyta henni þarf viðhorfsbreytingu.

Við erum sex félög sem stöndum að Aðgengisstrollinu vitundarvakning um aðgengismál, sem fer fram í dag. Við höfum það sameiginlegt að félagsfólkið er, eða verður hreyfihamlað. Félögin eru MS, MND, CP, SEM, GIGT og SJÁLFSBJÖRG sem standa að vitundarvakningu um mikilvægi aðgengis að öllum sviðum samfélagsins.

Aðgengi, er svo lítið orð um svo stóran og mikilvægan þátt í lífi allra manneskja. Við fæðumst flest í heiminn með þau sjálfsögðu réttindi að fæturnir beri okkur yfir nær allar hindranir sem á vegi okkar verða og við þurfum ekki að velta því fyrir okkur hvort við komumst upp á næstu gangstétt, hvort við getum kíkt í heimsókn til ömmu og afa, til vina okkar, foreldra, barna eða systkina, í bíó, bakaríið eða á næsta leikvöll, eða getum nýtt salerni. Við höfum nefnilega FLEST þennan innbyggða og sjálfsagða aðgengisrétt sem samfélagið hefur búið okkur.

Flest, sagði ég, af því að svo eru það við sem slösumst eða veikjumst eða höfum meðfædda hreyfihömlun, og við erum ekki fámennur hópur. Sjálfsögð réttindi eru því ekki svo sjálfsögð. Það er sárt að hafa ekki aðgengi, að geta ekki tekið þátt í allskonar starfi, ferðum og samveru, atvinnulífi eða námi vegna aðgengisleysis. Höfnunartilfinning er fylgifiskur margra sem nýta t.d. hjólastól í daglegu lífi, og gremja yfir því að hafa ekki aðgengi verður líka hluti af tilverunni Það er vont að upplifa að vera illa tekið og mæta fálæti þegar aðgengisþarfir eru útskýrðar, og erfitt að upplifa að aðrir telji mig ekki þurfa aðgengi að búðinni sinni, að veitingastaðnum sínum eða öðru sem almenningur nýtur. Hjálpartæki eru okkur frelsun og aðgengi, okkar leið til sjálfstæðis. Mikilvægi aðgengis er gríðarlegt.

Aðgengi að samfélagi í heild er eitthvað sem öll græða á, það er nefnilega góður ‚,bisniss‘‘ að þjónusta sé aðgengileg og hindrunarlaus. Það kostar ekki meira að hafa aðgengi að manngerðu umhverfi, en það krefst breytts hugsunarháttar og annarrar nálgunnar. Það krefst viðhorfsbreytingar. Aðgengi er lykill að sjálfstæði, þátttöku og virkni, svo einfalt er það.

Í dag hefur einstaklingur staðið fyrir því að rampa upp Ísland og nú höfum við sem erum hreyfihömluð aðgengi að nær 2000 fleiri stöðum en árið 2021. Samt er enn þörf á vitundarvakningu um aðgengi því enn eru sundlaugar óaðgengilegar, enn eru verslanir og ferðaþjónustustaðir óaðgengilegir, enn eru vinnustaðir og skólahúsnæði óaðgengilegt og enn er ekki aðgengi að íþróttavöllum, tónlistarhúsum og íbúðarhúsnæði og almenningssamgöngur eru meira að segja enn óaðgengilegar. Svo enn þarf að vekja athygli á því að aðgengi á að vera fyrir öll, því það er allra hagur.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Sjálfsbjargar Landssambands hreyfihamlaðra.

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 10.júní 2025

Fleiri fréttir