Á þessari síðu söfnum við saman upplýsingum um afslátt fyrir öryrkja. Ef þú veist um fleiri staði sem veita afslátt sem ekki er að finna hér á síðunni, endilega láttu okkur þá vita.
Barnamáltíð fylgir frítt með þegar fullorðinn kaupir mat og drykk, gildir aðeins á sunnudögum (upplýsingar af vefsíðu í febrúar 2017).
Börn yngri en 4 ára fá frítt á pizzahlaðborð, börn 4 -12 ára borga minna en fullorðnir (upplýsingar frá febrúar 2017).
Börn undir 6 ára fá frítt á brunch hlaðborð en börn 6 -12 ára fá 50% afslátt, gildir laugardaga og sunnudaga (upplýsingar frá febrúar 2017).
Börn undir 6 ára fá frítt á brunch hlaðborð en börn 6 -12 ára fá 50% afslátt, gildir laugardaga og sunnudaga (upplýsingar frá febrúar 2017).
Á fimmtudögum er hægt að fá tvær fríar barnamáltíðir fyrir börn undir 12 ára (upplýsingar frá október 2015).
Börn undir 6 ára fá frían brunch um helgar en börn 6 -12 ára fá 50% afslátt (upplýsingar frá október 2015).
Öryrkjar fá frí bókasafnskort í Bókasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Kópavogs (2 útibú), Bókasafni Garðabæjar (2 útibú) og Borgarbókasafni í Reykjavík (6 útibú).
Öryrkjar fá 10% afslátt. Það eru útibú á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Öryrkjar fá afslátt af meðferðum.
Þar er veittur afsláttur fyrir öryrkja og eldri borgara.
Örorkulífeyrisþegar sem koma reglulega í meðferð fá afslátt.
Þeir veita afslátt til öryrkja og eldri borgara og taka að sér ýmis verk tengd garðinum. Þeir gera fast verðtilboð og verkáætlun frítt. Hægt er að hafa samband við Róbert í síma 866-9767.
Þeir veita öryrkjum og eldri borgurum afslátt og taka að sér ýmis verkefni tengd garðinum. Það kostar ekkert að fá þá í heimsókn og þeir gera tilboð í verk án bindingar og kostnaðar. Síminn er 565 1400 og netfangið er gardarbest(hja)gardarbest.is
Öryrkjar og eldri borgarar 15% fá afslátt af hundasnyrtingu og rakstri, gegn framvísun skírteinis.
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá 7% staðgreiðsluafslátt. Er í Hafnarfirði.
Afsláttur af fasteignagjöldum
Öryrkjar eiga oft rétt á að fá afslátt af fasteignagjöldum, hvert sveitarfélag fyrir sig semur reglur varðandi þann afslátt sem veittur er og hægt er að nálgast upplýsingar um reglurnar á vefsíðum sveitarfélaganna. Upplýsingar Þekkingarmiðstöðvarinnar um sveitarfélögin.
Einstaklingar í hjólastól fá ókeypis í bíó á allar myndir.
Öryrkjar fá afslátt í bíó ef þeir sýna örorkuskírteini (Gildir ekki á íslenskar myndir).
Veitir öryrkjum afslátt af hefðbundnum LASIK- aðgerðum. Þær kosta 290 þúsund kr. en öryrkjar borga 250 þús
Öryrkjar fá 700 kr. afslátt af almennu miðaverði (gildir ekki á barnasýningar, september 2014).
Það er 800 kr. afsláttur fyrir öryrkja og eldri borgara á allri framleiðslu MAK (upplýsingar fengnar í desember 2015).
Veitir öryrkjum og eldri borgurum 500 kr. afslátt af miðaverði og frítt fyrir aðstoðarfólk (apríl 2019)
Einstaklingar í hjólastól fá ókeypis í stæði í sölum leikhússins. Öryrkjar fá 900 kr. afslátt af almennu miðaverði í Þjóðleikhúsinu. Gildir líka á barnasýningar (september 2014).
Líkamsræktarstöðin Hress veitir öryrkjum 25% afslátt af öllum kortum. Eldri borgarar fá kortin á öðrum kjörum, svokölluð 67+kort.
Á Reykjalundi er í boði heilsurækt sem er sérstaklega hugsuð fyrir þá sem eiga erfitt með að nýta sér almennar líkamsræktarstöðvar en er þó opin öllum. Hægt er að fara í vatnsleikfimi, tækjasal og sundlaug. Ef keypt er mánaðarkort í vatnsleikfimi fær maður einnig aðgang að tækjasal og sundlaug. Almennt verð er 11.900 kr. á mánuði en öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá mánuðinn á 10.500kr. Mánaðarkort í tækjasal er á 9.000 kr. (september 2016).
Veitir öryrkjum 15% afslátt af kortum gegn framvísun örorkuskírteinis.
Æfingakort í tækjasal, 10 skipta kort er á 3.000 kr. Mánaðarkort er á 3.000 kr. (September 2016)
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá 20% afslátt af kortum hjá gegn framvísun skírteinis.
Lögfræðistofan Laga veitir öryrkjum 20% afslátt. Sú lögfræðiþjónusta sem Laga sér um er öll skjalagerð, stjórnsýslumál og skattamál. Svo dæmi sé tekið sér Laga um alla þjónustu hvað varðar samskipti við Tryggingastofnun.
15% afsláttur fyrir öryrkja (Upplýsingar fengnar í mars 2015).
Öryrkjum og eldri borgurum er veittur 10% afsláttur af námskeiðum í flokkunum Menning og Persónuleg hæfni (Upplýsingar af heimasíðu þeirra í mars 2015).
Öryrkjar greiða lægra skráningargjald. Fara þarf í Þjónustuver á 2. hæð á Háskólatorgi með örorkuskírteini og greiða þar.
Öryrkjar fá 50% afslátt af skráningargjöldum (upplýsingar fengnar í september 2014).
Veittur er 10% afsláttur af tungumálanámskeiðum gegn framvísun örorkuskírteinis (Upplýsingar fengnar í desember 2015).
Myndlistaskólinn í Reykjavík veitir öryrkjum og eldri borgurum 5% afslátt af námskeiðum (skv. heimasíðu þeirra í desember 2015).
Örorku- og ellilífeyrisþegar fá afslátt af gjaldi á heimasíma og er það óháð því hvaða þjónustuleið er valin.
Tæknisveitin
Kemur heim til þín, veitir ráðgjöf, setur tækin upp, gerir við, leggur lagnir, tengir tækin saman við önnur og fær allt til að virka. Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því. Tæknisveitin veitir öryrkjum og eldri borgurum 10% afslátt.
Yfirlitssíða er um allar sundlaugar landsins er að finna á sundlaug.is.
Eftirtaldar sundlaugar hafa frítt fyrir fatlað fólk:
Sundlaug Seltjarnarness - einnig frítt fyrir fylgdarmann gegn framvísun örorkuskírteinis.
Sundlaugar í Hafnarfirði - Fyrir fatlaða einstaklinga og aðstoðarmenn þeirra er frítt í sundlaugar í Hafnarfirði (Sundhöllina, Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug) ef sýnd er staðfesting á örorku. Einnig er frítt fyrir þá sem sýna staðfestingu á umönnunarmati (upplýsingar fengnar í júní 2015).
Sundlaugar Kópavogs - Öryrkjar fá frítt í sund hjá Kópavogsbæ sýni þeir örorkuskírteini. Sundkort fatlaðra, sem gefið er út af Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu fyrir ÍTR, er einnig tekið gilt í sundlaugar í Kópavogi.
Sundlaugar Íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur (ÍTR) - Frítt er í sund fyrir öryrkja sem sýna örorkuskírteini eða sundkort ÍTR, sem gefið er út af Sjálfsbjörg á Höfuðborgarsvæðinu.
Jaðarsbakkalaug á Akranesi
Sundlaugin Ólafsvík - Það er frítt fyrir þá sem sýna örorkuskírteini
Sundlaugin Stykkishólmi - Öryrkjar fá afslátt
Sundlaugin Drangsnesi - Frítt er fyrir öryrkja sem búsettir eru í hreppnum.
Sundlaugina á Tálknafirði - Öryrkjar fá frítt í sund og einnig frítt fyrir fylgdarmann gegn framvísun örorkukorts.
Sundlaugin Skagaströnd - 75% öryrkjar fá frítt í sund
Sundlaugin Varmahlíð - Öryrkjar sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu fá frítt í sund.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar, Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Ólafsfirði og Sundlaug Húsavíkur,
Sundhöll Selfoss,
Sundlaugin á Stokkseyri
Sundlaugin í Hveragerði
Grindavík, Vogum,
Afsláttur er veittur fyrir öryrkja í sund á eftirtöldum stöðum:
Sundkort fatlaðra er gefið út af Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12 (að ofanverðu - inngangur #7), fyrir ÍTR og gildir í sundlaugar í Reykjavík. Sjá nánar hér fyrir neðan.
Sundkort fatlaðra er gefið út af Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu, fyrir ÍTR (Hátúni 12, 105 Reykjavík)þ. Kortin eru afgreidd gegn framvísun örorkuskírteinis (græna kortið) eða ef sýnt er staðfestingarblað frá TR um að einstaklingurinn fái umönnunargreiðslur eða sé á endurhæfingalífeyri. Sundkortin gilda almannaksárið og eru afgeidd þar til einstaklingurinn er orðinn 70 ára að aldri. Gegn framvísun kortsins er frítt í sund í Reykjavík og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
Skrifstofa Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu er opin alla virka daga frá kl. 10:00-14:00. Síminn er 551-7868 og netfang félagsins er skrifstofa(at)sjalfsbjargar.is
Þá má nefna að frítt er í sundlaugar í Kópavogi fyrir öryrkja og aldraða (staðfest 2019).
Þegar öryrki verður 67 ára er hægt að fara með örorkukortið (græna kortið) til Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, og þau útbúa sundkort sem gildir til 70 ára, við 70 ára aldur fær fólk í Reykjavík frítt í sund.
Vatnskot við Þingvallarvatn |Þingvallarsveit í Bláskógarbyggð | Landverðir Þjóðgarðsins veita upplýsingar
Aðstaðan fyrir hreyfihamlað fólk og hjólastólanotendur í Vatnskoti við Þingvallavatn er nokkuð góð og liggur þar greiðfær bryggja út að fínustu kaststöðum fyrir hreyfihamlað fólk og hjólastólanotendur. Þó eru ekki aðrir staðir við strandlengjuna hentugir fyrir hreyfihamlaða, því er gott að koma við í þjónustumiðstöð Þingvalla og fá nánari upplýsingar um hentugustu staðina við vatnið.
Frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Elli/-og örorkulífeyrisþegar fá veiðileyfi fyrir sumarið endurgjaldslaust í þjónustumiðstöð. Sjá nánar á vefsíðu Þingvalla
Veiðikortið er hagkvæmur kostur fyrir veiðiáhugafólk, en með því er unnt að veiða í 34 vötnum víðsvegar um landið. Sjá: Veidikortid .
veitir öryrkjum 15% afslátt.
veitir öryrkjum 10% afslátt af mat, gildir ekki af drykkjum eða með öðrum tilboðum.
veitir öryrkjum 10% afslátt gegn framvísun örorkuskírteinis, afslátturinn gildir ekki með öðrum tilboðum.
veitir öryrkjum og eldri borgurum 10% afslátt.
veitir 15% afslátt fyrir öryrkja.
Veitir öryrkjum 10% afslátt gegn framvísun örorkuskírteinis (ágúst 2012).
Mörg apótek veita öryrkjum afslátt og er um að gera að spyrja um slíkan afslátt.
Eirberg veitir öryrkjum 5% afslátt (september 2015).
Mörg bakarí bjóða öryrkjum afslátt. Um að gera að spyrja.
Blómagallerí, Hagamel 107 Reykjavík, gefur öryrkjum 10% afslátt (nóvember 2014).
Blómasmiðjan, Grímsbæ 108 Reykjavík, gefur öryrkjum 15% afslátt (ágúst 2018).
Byggt og búið veitir öryrkjum afslátt.
Cintamani veitir öryrkjum og eldri borgurum 10% afslátt (desember 2015).
Öryrkjar og eldri borgarar fá 10% afslátt (desember 2015)
í Kringlunni, býður öryrkjum 15% afslátt af gleraugum. Aðgengi í verslunina er gott. Aðgengi fyrir hjólastólanotnendur í sjónmælingu er gott; viðskiptavinir geta t.d. setið í sínum hólastól meðan sjónmæling fer fram.
Optical Studio býður öryrkjum 15% afslátt í búðinni en ef gleraugun eru send í Fríhöfnina í Leifsstöð er afslátturinn fyrir alla 20-25% (ágúst 2014). Verslanir Optical Studio eru á þremur stöðum, í Smáralind, Hafnargötu Keflavík og í Leifsstöð.
Glerártorgi/Kaupvangi á Akureyri, býður öryrkjum 15% aflsátt af gleraugum. Aðgengi í verslun og aðstaða fyrir hjólastólanotendur til að fara í sjónmælingu er mjög gott á Glerártorgi.
Gleraugnaverslunin Glæsibæ veitir öryrkjum og meðlimum í Félagi eldri borgara 35% afslátt af gleraugum.
Öryrkjar fá 8% afslátt af völdum vörum. Það þarf að spyrjast fyrir um afsláttinn þegar verslað er.
Sjón á Laugavegi veitir öryrkjum og meðlimum í Félagi eldri borgara 35% afslátt af gleraugum.
Strandgötu í Hafnarfirði, býður öryrkum 10% afslátt af öllum vörum og þjónustu í versluninni. Aðgengið er gott inn í verslun að sögn starsfmans (hruðin er með pumpu sem hægt er að festa). Hjólastólanotendur sem panta sjónmælingu þurfa að geta fært sig yfir í annan stól þegar mælingin fer fram.
Sjónglerið ehf. Skólabraut 25 Akranesi býður öryrkjum 10% afslátt af gleraugum í verslun sinni. Sjá nánari upplýsingar um síma og mynd af aðgengi inn í verslun ja.is.
Frítt er fyrir öryrkja og aldraða inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinnn í Laugardalnum Reykjavík. Sjá nánari upplýsingar um garðinn.
Börn á leikskólaaldri, eldri borgarar og öryrkjar fá frítt á Skíðasvæðin, en þurfa þó að hafa "Hart kort" eins og aðrir. Hart kort kostar 1000 kr. og er hægt að fylla á aftur og aftur. Mikil þægindi eru í notkun harða kortsins, þú hefur kortið í vasanum vinstra megin og þarft ekki að taka það upp þegar þú ferð í gegnum hliðin. Sjá vefsíðu Skíðasvæðanna.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér