Söguvefur Sjálfsbjargar
Fyrsta skrefið hefur nú verið tekið á þeirri vegferð að skrásetja sögu Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra - með opnun þessa söguvefs. Fyrsta útgáfa er nú opnuð í tilefni af 50 ára afmæli sambandsins sem haldið er upp á 6. júní árið 2009, en stofndagur Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra, er 4. júní 1959.
Vefurinn er byggður upp sem heildsstæð saga sem getur tekið sífelldum breytingum og viðbótum. Félagar í Sjálfsbjörg og aðrir velunnarar munu eiga mikinn þátt í að móta söguvefinn með ábendingum um breytingar og viðbætur á sögunni og á þann hátt verður vefurinn þéttari og betri með hverri ábendingu, hvort sem það er mynd úr kassa á háaloftinu eða upplýsingar sem ekki hafa ratað á vefinn áður.
ÞIÐ - SJÁLFSBJARGARFÉLAGAR - GETIÐ GERT ÞENNAN VEF ENN BETRI!
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra á sér farsæla sögu en einnig sögu sem lýsir því er fjölmargar hindranir voru yfirstignar. Í Sjálfsbjargarferð árið 1964 var einu sinni sem oftar haldið á nýjar og erfiðar slóðir, Borgarvirki í Húnaþingi, slóðir sem fyrirfram hefðu verið taldar óyfirstíganlegar hreyfihömluðu fólki en bæði lausavísur og myndir sýna að engin hindrum er óyfirstíganleg, stutt í gaman og gleði og félagsskapurinn skiptir miklu máli. Það er kjarninn í sögu Sjálfsbjargar.

- Þau bröltu í Borgarvirki
- og blöskraði ekki hót
- höltruðu með hörku
- og hækju lömdu í grjót.
- Seigir þóttu forðum þeir
- Suðurnesjamenn,
- en táp og fjör og frískar konur
- finnast hér enn.
Þess má geta að konan á myndinni, Guðríður Ólafsdóttir, varð seinna formaður Sjálfsbjargar, frá 1994-1998.
|