Leturstærð Decrease text size Increase text size
 
 
Bifreiðar og hreyfihamlaðir Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
16. febrúar 2009
Ný reglugerð nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða tekur gildi. Áfangasigur varðandi nokkur atriði, upphæð krónutölustyrkja hækkar, en ekki í samræmi við hækkun á vísistölu síðustu 9 ára, en árangur í öðrum atriðum. T.d. pallbílar: Skilyrði er breytt þannig að aðeins pallbílar sem eru skráðir sem vörubifreiðar teljast ekki til daglegra nota í stað allra pallbíla nú. Fjárhæðir uppbóta/styrkja til kaupa bifreiðar eru hækkaðar um 20%.

Styrkir til kaupa á sérútbúnum og dýrum bifreiðum, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar (hjólastólabílar):
- Afnám skilyrðis um launaða vinnu eða skóla
- 50 og 60% styrkir miðast við þörf fólks fyrir bifreiðar í daglegu lífi og því er fellt út skilyrði um launaða vinnu eða nám.
- Jafnframt er fellt út skilyrðið um að hann verði að aka sjálfur og heimilað að annar heimilismaður aki bifreiðinni.
- Bætt er við hámarksfjárhæð 50-60% styrkja, 5 millj. kr.

Fréttatilkynning félags- og tryggingamálaráðuneytisins um ofangreint er hér

8. desember 2008
Umboðsmaður Alþingis gefur álit á tilteknum atriðum varðandi skilyrði og takmörkun á veitingu bifreiðakaupastyrkja hreyfihamlaðra. Sjá frétt á mbl.is hér . . .

5. desember 2008
Breyting verður á reglugerðinni bifreiðakaupastyrki skv. nýrri reglugerð um styrki vegna hjálpartækja. Sjá hér reglugerðina um bifreiðakaupastyrki með áorðnum breytingum, sem nú eru í gildi.

Fyrirpurn á Alþingi um bifreiðakaupastyrki fatlaðra um miðjan nóvember 2008
Birkir J. Jónsson, þingmaður, spurði um hækkun styrkja og skilyrði um að stunda vinnu eða skóla vegna hjólastólabíla. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra svaraði. Nánar hér á vef Alþingis.

Uppbætur og styrkir vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðra
Breyting, sem tók gildi 22. mars 2007, hefur verið gerð á reglugerð um styrki og uppbætur Tryggingastofnunar ríkisins til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. Sjá reglugerðina með þeim breytingum hér.  Sjálfsbjörg lsf sendi fréttatilkynningu til fjölmiðla um málið 27. mars 2007.

Ályktanir þings Sjálfsbjargar lsf 16. og 17. maí 2008 um bifreiðamál hreyfihamlaðra, sendar ráðuneytum og fjölmiðlum

Öryggi einstaklinga í hjólastól í bifreiðum
Að undanförnu hefur kastljósi fjölmiðla verið beint að skorti á reglum um öryggisbelti fyrir farþega í bifreiðum sem ætlaðar eru til flutnings hreyfihömluðum og sitja í hjólastól sem festur er við gólf bifreiðarinnar. Samgönguráðuneytið hefur birt drög að breytingu á reglugerð um hertar kröfur. Umsagnarfrestur er til 2. apríl 2007. Sjá nánar hér . . .

Breytingar á viðurlögum við að leggja í stæði fatlaðra án heimildar
Í lok þinghalds Alþingis í mars 2007 var samþykkt breyting á umferðarlögum varðandi viðurlög við því að leggja í stæði fatlaðra án heimildar. Sjá nánar hér. Nánari umfjöllun verður hér síðar.
 
 
September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3
Fös Jún 04
Dregið í happdrætti Sjálfsbjargar lsf.
Hvernig finnst þér nýja síðan?
 
 
Sjálfsbjörg. Hátúni 12, 105 Reykjavík. Sími: 550 0360 mottaka 'hjá' sjalfsbjorg.is