Cheap VMware Workstation 9 OEM
Buy Viagra Pills
Levitra Or Viagra
Where To Buy Windows 8
Download Windows 8 OEM
Full Version Used Software
Discount Autodesk Simulation Multiphysics 2012
Payday loans
Leturstærð Decrease text size Increase text size
 
 
Samvinnuverkefni um ferðaþjónustu fatlaðra Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Samvinnuverkefni um ferðaþjónustu fatlaðra
í höfuðborgum Norðurlandanna

Þann 8. desember 2008 tók gildi tilraunaverkefni til tveggja ára milli Reykjavíkurborgar, Kaupmannahafnar, Osló og Stokkhólms sem felst í því að hreyfihamlaðir íbúar borganna geta nú nýtt sér ferðaþjónustu fatlaðra í þessum borgum. Helsinki er ekki enn með í verkefninu.

Hreyfihamlaðir Reykvíkingar sem dvelja í áðurnefndum borgum, geta þannig pantað ferðaþjónustu fatlaðra á sama hátt og notendur ferðaþjónustunnar, sem búsettir eru í borgunum. Eins geta íbúar hinna borganna, sem á þurfa að halda, pantað ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík. Það gilda sömu reglur varðandi ferðaþjónustuna fyrir þá sem ferðast og heimamenn á hverjum stað.

Hægt er að fá ferðaþjónustu fatlaðra til og frá flugvöllum í hinum borgunum en sú þjónusta er ekki í boði hérlendis.

Skilyrði fyrir þjónustunni er að fólk þurfi á hjólastól að haldan á ferðum sínum og geti því ekki nýtt sér almenningssamgöngur á staðnum. Verkefnið nýtist bæði þeim hreyfihömluðu einstaklingum sem eru notendur Ferðaþjónustu fatlaðra og þeim sem eiga sérútbúinn bíl vegna fötlunar.

Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar veita nánari upplýsingar. Á tenglinum hér að framan er að finna upplýsingabækling. Þjónustumiðstöðvar taka á móti umsóknum og sjá um að senda upplýsingar um þá sem fá þjónustuna samþykkta til viðkomandi borgar.

Frumkvæði að verkefninu kemur frá samtökum heyfihamlaðra á Norðurlöndunum, Nordisk Handikap Forbund, sem Sjálfsbjörg er aðili að. Norræna ráðherranefndin veitti styrk til verkefnisins, sem unnið var að í samvinnu við fulltrúa frá höfuðborgum Norðurlandanna.

Félögin sem standa að verkefninu eru:

Dansk Handicap Forbund, http://dhf-net.dk/
Norges Handicap Forbund, http://www.nhf.no/
De Handikappedes Riksforbund, http://www.dhr.se/
Sjálfsbjörg lsf, http://www.sjalfsbjorg.is/

Sjálfsbjörg lýsir ánægju sinni með verkefnið sem áfanga og mikilvægan þátt í því að draga úr mismunun á grundvelli fötlunar vegna aðgengis að borgarlegri þjónustu sem almennings samgöngur eru og ferðaþjónusta fatlaðra er hluti af.
 
 
Júní 2013
M Þ M F F L S
27 28 29 30 31 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
No events
 
Sjálfsbjörg. Hátúni 12, 105 Reykjavík. Sími: 550 0360 mottaka 'hjá' sjalfsbjorg.is