Vilt þú fá ódýrara eldsneyti á bílinn, en getur ekki eða átt erfitt með að dæla sjálfur?
Sjálfsbjörg og Skeljungur hf hafa náð samkomulagi um að veita hreyfihömluðum bifreiðaeigendum, sem eru handhafar ,,stæðiskorta“, P-merkis fatlaðra, sjálfsafgreiðsluafslátt af eldsneyti í fullri þjónustu á Shellstöðvunum um allt land. Afslættinum er stjórnað á þann hátt að þeir sem hafa fengið úthlutað stæðiskorti fatlaðra hjá sýslumanni eða lögreglustjóra vegna hreyfihömlunar geta sótt um Vildarkort hjá Skeljungi. Ljósrit af stæðiskortinu þarf að fylgja umsókn og verður þá sjálfvirkur aflsáttur af eldsneyti skráð á kortið hjá Skeljungi. Umsóknareyðublöð fyrir Shell vildarkort liggja frammi á Shellstöðvunum og hægt er að senda umsóknir í pósti til Skeljungs hf eða leggja inn á næstu Shellstöð. Skeljungur hf sendir Vildarkortið heim til umsækjanda þegar umsókn hefur verið samþykkt.
Handhafar stæðiskorta fatlaðra sem framvísa Shell vildarkorti munu fá afgreitt eldsneyti á dælum með fullri þjónustu en á verði eldsneytis eins og er á sjálfsafgreiðsludælum. Þessi þjónusta er á Shellstöðvuðum milli kl. 7:30 og 19:30.
Ekki þarf að óska eftir afslættinum sérstaklega við afgreiðslu á Shellstöð. Að auki færast vildarpunktar á viðkomandi. Nánari upplýsingar um Vildarkort Skeljungs hf er að finna á vef fyrirtækisins www.skeljungur.is
|