|
Fréttatilkynning frá Halaleikhópnum |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Miðvikudagur, 27. Janúar 2010 09:16
|
|
|
|
Halaleikhópurinn vinnur þessa dagana hörðum höndum að uppsetningu á leikverkinu ,,Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar“ sem á að frumsýna föstudaginn 5. febrúar klukkan 20:00. Um er að ræða nýja leikgerð eftir þau Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Þorgeir Tryggvason í samvinnu við leikhópinn. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir þeim Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur, en þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin og banað mökum sínum. Tónlist og áhrifshljóð í verkinu er samin af þeim Einari Andréssyni og Einari Melax og verður flutt “live” þar sem spilað verður á Gömbu, Steinaspil, Hammond og borðhörpu.
Þetta er fyrsta uppsetning Ágústu með Halaleikhópnum en leiðir hennar og Þorgeirs, sem þekktur er úr hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum, hafa oft legið saman í leikhúsunum og má þar nefna GRIMMS hjá Leikfélagi Kópavogs sem valin var athyglisverðasta áhugasýning ársins 2003 og Grímuverðlauna barnasýningarnar KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR (Þjóðleikhúsið 2005) og BÓLU HJÁLMAR (Stoppleikhúsið 2009) en í þeim tveimur síðarnefndu var Þorgeir einn höfunda.
Meira um þetta er að finna á vefsíðu Halaleikhópsins. |