|
Heiðursmenn |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Miðvikudagur, 14. Júlí 2010 11:14
|
|
|
|

Tveir aldraðir Sjálfsbjargarfélagar sem hafa unnið fyrir félag sitt hátt í aldrarfjórðung, af heilindum og fórnfýsi , með ráðum og dáð, voru sæmdir gullmerki landssambandsins á 50 ára afmæli Sjálfsbjargar á Húsavík og nágrenni þann 27. júni 2010.
Það var formaður landssambands Sjálfsbjargar, Grétar Pétur Geirsson, sem veitti þeim Brynjari Halldórssyni og Hermanni Larsen heiðursmerki. Hermann var einn af stofnendum félagsins á Akureyri . Báðir hafa þeir verið í stjórnunarstörfum fyrir félag sitt á Húsavík um langt árabil.
Þeim eru þökkuð þeirra störf í þágu Sjálfsbjargar og óskað velfarnaðar á ókomnum árum. |
|
|
Vinningshafi sumarhappdrættis Sjálfsbjargar |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Miðvikudagur, 14. Júlí 2010 11:02
|
|
|
|

Þann 4. júní, sem er stofndagur Sjálfsbjargar lsf, var dregið í sumarhappdrætti landssambandsins. Dregið er tvisvar á ári í Happdrætti Sjálfsbjargar þ.e. 4. júní og svo á Alþjóðadegi fatlaðra 3.desember.
Útgefnir miðar eru 55 þúsund í hvort skipti og heildarverðmæti 204 vinninga er kr.15.600.000,-
Margir góðir vinningar voru í boði og var fyrsti vinningur bíll að verðmæti 3 milljónir frá Bernhard ehf bílaumboðinu.
Að þessu sinni var það heppinn miðaeigandi á Akureyri , Elísa Emma Zachrison,sem hlaut stóra vinninginn.
Elísa er eiginkona Valdimars Péturssonar sem margir Sjálfsbjargarfélagar þekkja fyrir störf í þágu Sjálfsbjargar, bæði félagsins á Akureyri og eins fyrir landssambandið, en hann hefur lengi verið skoðunarmaður ársreikninga Sjálfsbjargar.
Dóttir þeirra Lísa Z. Valdimarsdóttir tók svo við bílnum í gær og mun koma honum til foreldra sinna á Akureyri.
Stjórn Sjálfsbjargar lsf óskar vinningshafanum til hamingju með bílinn, og öðrum vinningshöfum með sína vinninga, um leið og hún þakkar öllum þátttakendum í happdrættinum fyrir stuðninginn. |
|
Afmælisfagnaður og fyrsti fundur framkvæmdastjórnar |
|
|
|
Skrifað af: Kolbrún Stefánsdóttir
Fimmtudagur, 01. Júlí 2010 09:55
|
|
|
|

Ný Framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar lsf hélt sinn fyrsta fund á Húsavík 27. júní s.l. í húsnæði Sjálfsbjargarfélgasins að Árgötu 23.
Tilefni ferðar þangað var að heiðra Sjálfsbjörg á Húsavík og nágrenni sem átti 50 ára afmæli þann 20. júní sl.
Afmælisfagnaður var svo 27. júní á Fosshótelinu á Húsavík. Þar var boðið upp á veitingar ýmiskonar, ræður og skemmtiatriði. Núverandi formaður Húsaavíkurfélagsins, María Óskarsdóttir, fór yfir sögu félagsins og stöðu mála eins og þau blasa við í dag.
Grétar Pétur Geirsson nýr formaður samtakanna ávarpaði gesti og færið félaginu árnaðaróskir og þakkir.
|
|
Nánar...
|
|
Störf við undirbúning að stofnun Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Mánudagur, 21. Júní 2010 15:40
|
|
|
|
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra og Sjálfsbjargarheimilið hafa í sameiningu ákveðið að setja á stofn Þjónustu- og þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar. Yfirmarkmið miðstöðvarinnar verður að veita þjónustu sem bætir stöðu og styrkir hag hreyfihamlaðs fólks í samfélaginu, sem jafningja meðal borgaranna. Miðað er við að helstu verkefni miðstöðvarinnar geti orðið eftirfarandi:
- Að veita hreyfihömluðu fólki svör á einum stað við sem flestum spurningum um réttindi sín.
- Að veita hreyfihömluðu fólki stuðning og aðstoð við að leita réttar síns.
- Að standa fyrir námskeiðum, til dæmis í formi jafningjafræðslu.
- Að tryggja aðgang að fagfólki sem hefur sérþekkingu á málefnum hreyfihamlaðs fólks svo og að tryggja aðgang sama hóps að fjármálaráðgjöf.
- Miðstöðin skal á sama tíma vinna að hugarfarsbreytingu í samfélaginu gagnvart hreyfihömluðu fólki með fræðslu fyrir ráðamenn og almenning.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |