|
Listi Kjörnefndar uppfærður |
|
|
|
Skrifað af: Jón Eiríksson
Miðvikudagur, 10. Mars 2010 11:02
|
|
|
Stöðulisti framboða frá kjörnefnd hefur verið uppfærður og er hann að finna hér. Kjörnefnd vill hvetja formenn félaganna að kynna listann í sínum félögum. Nefndin þarf að skila af sér loka lista þann 31. mars næstkomandi. Þá þurfa að liggja fyrir framboð í öll þau embætti sem í boði eru.
|
|
|
Ný vefsíða Sjúkratrygginga Íslands |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Miðvikudagur, 03. Mars 2010 18:02
|
|
|
|
Ný vefsíða Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is var tekin í notkun þriðjudaginn 16. febrúar sl. Vefurinn mun taka við hlutverki tr.is sem upplýsingaveita um réttindi til sjúkratrygginga. Markmiðið er einnig að vefurinn þjóni betur heilbrigðisstarfsfólki og stofnunum heldur en áður hefur verið gert.
|
|
Nánar...
|
|
Ráðstefnan Mannréttindi og sjálfstætt líf - Aðalfundur Félags um fötlunarrannsóknir |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Þriðjudagur, 02. Mars 2010 13:18
|
|
|
|
Félag um fötlunarrannsóknir og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands bjóða til ráðstefnu um fötlunarrannsóknir.
Ráðstefnan - Mannréttindi og sjálfstætt líf - verður haldin föstudag 12. mars 2010, kl. 9.00 – 17.00 á Grand Hótel Reykjavík.
Í framhaldi ráðstefnunnar verður aðalfundur Félags um fötlunarrannsóknir haldinn eða kl. 15.30 - 17:00.
Upplýsingar og/eða skráning á ráðstefnuna má finna á þessari slóð: http://vefsetur.hi.is/fotlunarrannsoknir/radstefna_og_adalfundur |
|
Mannréttindi hreyfihamlaðs fólks fótum troðin, hversu lengi enn? |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Föstudagur, 26. Febrúar 2010 13:58
|
|
|
|
Í samfélaginu hafa langa lengi verið teknar ákvarðanir, meðvitaðar og ómeðvitaðar, um að hreyfihamlað fólk skuli búa við skert mannréttindi um aldur og ævi. Þessar ákvarðanir hafa t.d. leitt til þess að sá hópur íslenskra borgara getur ekki valið sér íbúð og búsetu hvar sem er vegna skorts á aðgengi fyrir alla og takmarkaðrar félagslegrar þjónustu. Af sömu ástæðum getur hreyfihamlað fólk ekki valið sér menntun né hefur frjálst val á vinnumarkaðnum og sama gildir um ferðafrelsið. Þetta eru allt mannréttindi sem óhreyfihamlað fólk tekur sem gefnu. Manngildi hreyfihamlaðs fólks er gjaldfellt og litið er á það sem kostnað og sérstaka greiðasemi ef samfélagið tekur tillit til og mætir þörfum þessara borgara.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |