|
Á að ferðast innanlands í sumar? |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Föstudagur, 07. Maí 2010 12:16
|
|
|
|
Við vorum að fá tilkynningar um tvo staði sem henta afar vel fólki með hreyfihömlun.
Annarsvegar er það gistiheimili sem heitir ferðaþjónustan Skjaldvík og er einungis í 5 mínutna fjarlægð frá Akureyri og opnar núna 15. maí. Á heimasíðu þeirra, www.skjaldarvik.is er hægt að finna allar upplýsingar, myndir og fleira.
Hinsvegar er það orlofshús á Selfossi sem Þroskahjálp á Suðurlandi rekur og leigir öllum aðildarfélögum innan Öryrkjabandalagsins. Húsið er miðsvæðis á Selfossi og er hjólastólaaðgengi mjög gott. Allar nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu Þroskahjálpar (.pdf skal) |
|
|
Lokalisti kjörnefndar tilkynntur |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Þriðjudagur, 04. Maí 2010 12:29
|
|
|
|
Vegna tæknilegra örðuleika var ekki hægt að birta listann fyrir en nú. Nú er búið að loka formlega fyrir framboð á þing Sjálfsbjargar lsf. 2010.
Hægt er að skoða endanlegan lista með því að klikka á þennan tengil. |
|
NHF stjórnarfundi og málþingi frestað |
|
|
|
Skrifað af: Andri Valgeirsson
Föstudagur, 16. Apríl 2010 10:41
|
|
|
|
Málþingi og stjórnarfundi NHF, Nordiska Handikappförbundet, sem átti að vera um helgina 17. og 18. april 2010 hefur verið frestað vegna eldgossins og vandræða með flugsamgöngur. Ekki er enn komin ný dagsetning á þessa viðburði en verið er að vinna í að færa dagskrána. Fólk getur fylgst með hér á forsíðunni hvort einhverjar breytingar eiga sér stað og munum við láta vita um leið og hlutirnir skýrast. |
|
Félagsmálaráðuneytið og Íbúðalánasjóður á villigötum: Aukalán vegna sérþarfa fatlaðs fólks |
|
|
|
Skrifað af: Ragnar Gunnar Þórhallsson
Fimmtudagur, 15. Apríl 2010 17:01
|
|
|
|
Að undanförnu hefur Íbúðalánasjóður verið að vekja sérstaka athygli á og auglýsa það sem kallað er aukalán fyrir fatlað fólk, en þessi lán eiga sér langa sögu eða allt frá því tímabili hinnar opinberu peningastefnu þegar lán töldust happafengur og fundið fé. Nú er um að ræða allt að 8 milljóna kr. lán, sem fatlað fólk getur fengið til viðbótar þeim allt að 20 milljónum kr. er almennt bjóðast hjá Íbúðalánasjóði vegna íbúðakaupa, en bæði þessi lán bera sömu vexti. Aukalánin eru skilgreind þannig hjá Íbúðalánasjóði: „Þeir sem hafa skerta starfsorku, eru fatlaðir eða hreyfihamlaðir geta fengið aukalán vegna sérþarfa til að gera breytingar á íbúðarhúsnæði vegna sérþarfa sinna eða til að kaupa eða byggja húsnæði sem hentar og er þess vegna dýrara en ella.“. Hér er kolröng hugmyndafræði á ferð sem þarf að endurskoða frá grunni.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |